12.3 Meðhöndlun
Ef sjúklingur fær einkenni eftir leka:
- Láta viðkomandi útlim liggja hátt og meðhöndla með kælingu (ís í poka)
- Gefa sjúklingi sjálfum og deildinni þar sem sjúklingur liggur ráðleggingar um að fylgjast með:
- Verk
- Blöðrumyndun
- Herslismyndun
- Hita
- Blóðflæði
- Skynjun
- Ef einkenni versna er ráðlegt að fá álit skurðlæknis (kirurgiska konsultation)
Athugasemdir:
Það hefur engin áhrif að reyna að aspirera vökvann eða meðhöndla með lyfjum svo sem sterum, vasodilatorum, hyaluroniðösum o.þ.h.
Við notkun lágismoler eða isoosmoler skuggaefna er í lang flestum tilfellum ekki um alvarlega skaða að ræða við skuggaefnisleka.
Í mörgum tilfellum eru engin einkenni til staðar
Ef óljóst er hvort skuggaefnisleki hefur átt sér stað má taka röntgen yfirlitsmynd af svæðinu.